• Sjóðfélagavefur
    • Launagreiðendavefur
    EN
  • Lífeyrir
    Til baka
    Lífeyrir
    Traust lífeyristrygging
    • Ellilífeyrir
    • Örorkulífeyrir
    • Makalífeyrir
    • Barnalífeyrir
    • Lífeyrisreiknir
    • Skattlagning lífeyrisgreiðslna
    • Skipting ellilífeyris
    • Lífeyrir almannatrygginga
    • Söfnun réttinda
    • Hálfur lífeyrir
    • Viðmiðunariðgjald
  • Lán
    Til baka
    Lán
    Hagstæð húsnæðislán
    • Lánareiknivél
    • Helstu kostir
    • Vaxtakjör
    • Lántökuréttur
    • Umsóknir
    • Gjaldskrá
    • Vaxtaþróun
    • Lánareglur
    • Lánaupplýsingar
  • Séreign
    Til baka
    Séreign
    Einn hagkvæmasti sparnaður sem völ er á
    • Helstu kostir
    • Fasteignakaup
    • Fjárfestingar­leiðir
    • Ávöxtun
    • Tilgreind séreign
    • Skilmálar samnings
    • Lykilupplýsingar
  • Iðgjöld
    Til baka
    Iðgjöld
    Lögbundin iðgjöld
    • Iðgjaldaskil
    • Skilagreinar og greiðslur
    • Rafræn skil á iðgjöldum
    • Bankakröfur
    • Stéttarfélagsgjöld
    • Endurhæfingarsjóður
    • Séreign
  • Um Gildi
    Til baka
    Um Gildi
    Öflugur bakhjarl sjóðfélaga
    • Starfsfólk
    • Stjórn og nefndir
    • Nefndir
    • Skipurit
    • Ársskýrslur
    • Kynningar
    • Fjölmiðlatorg
    • Eignir og fjárfestingar
    • Samtryggingardeild
    • Stefnur og samþykktir
    • Saga Gildis
    • Persónuverndarstefna
  • Sjóðfélagavefur
  • Launagreiðendavefur
  • Innskráning
    • Sjóðfélagavefur
    • Launagreiðendavefur
    EN
  • Gildi lífeyrissjóður
  • Séreign
  • Helstu kostir

Helstu kostir

  • Fjárfestingarstefna
  • Ávöxtun
  • Umsóknir
  • Lykilupplýsingar

Skattalegt hagræði

Greiðslur í séreignarsparnað eru dregnar frá launum fyrir skatt. Útborguð laun lækka því nokkru minna en nemur þeirri fjárhæð sem lögð er í sparnaðinn, þar sem skatturinn er greiddur við úttekt hans. Þá er ekki greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtun.

Mótframlag frá launagreiðanda

Enginn ætti að láta mótframlag launagreiðanda ganga sér úr greipum, enda felst hrein launauppbót í því sem nemur þessum 2%. Launagreiðandi sér um alla umsýslu eftir að gengið hefur verið frá samningi um séreignarsparnað.

Aukið ráðstöfunarfé á efri árum

Við starfslok má ætla að ráðstöfunartekjur lækki og þá er gott að geta gripið til séreignarsparnaðarins til að hækka þær.

Sparnaðurinn erfist

Séreignarsparnaður er séreign viðkomandi sem erfist að fullu til lögerfingja og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga.

Sveigjanleg ráðstöfun

Frá 60 ára aldri er hægt að taka alla inneign út í einu, fá reglubundnar greiðslur eða stakar þegar þörf krefur.

Skerðir ekki tilteknar greiðslur frá hinu opinbera

Séreignarsparnaður hefur ekki áhrif á ellilífeyri og tekjutryggingu frá almannatryggingum og skerðir ekki barnabætur, vaxtabætur eða atvinnuleysisbætur.

Umsókn um séreignarsparnað (rafræn) Umsókn um séreignarsparnað (PDF)

Gott að vita

  • Hvað er séreignarsparnaður?

    Séreignarsparnaður er viðbótarlífeyrissparnaður og séreign viðkomandi. Þetta er einn hagkvæmasti sparnaður sem völ er á. Launþegi sem leggur 2-4% fyrir mánaðarlega af launum sínum fær 2% mótframlag frá vinnuveitanda sem í reynd er þá hrein launauppbót. Líkt og með annan lífeyrissparnað er ekki greiddur skattur af honum fyrr en við útgreiðslu.

  • Hvenær get ég fengið séreignina greidda út?

    Séreignarsparnað er hægt að nýta frá 60 ára aldri með þeim skilyrðum að lágmark tvö ár séu liðin frá fyrstu innborgun. Þá er hægt að taka allt út í einu, fá reglubundnar greiðslur eða stakar þegar þörf krefur.

  • Hvernig er séreignarsparnaður ávaxtaður?

    Hjá Gildi er hægt að velja á milli þriggja mismunandi fjárfestingarleiða sem byggjast á samspili ávöxtunar og áhættu ásamt ólíkum þörfum og áhættuvilja sjóðfélaga.

  • Hefur séreignarsparnaður áhrif á ellilífeyri frá hinu opinbera?

    Séreignarsparnaður hefur ekki áhrif á ellilífeyri og tekjutryggingu frá almannatryggingum.

  • Get ég ráðstafað séreign í húsnæði?

    Séreignarsparnað er hægt að nýta skattfrjálst við kaup á fasteign eða til greiðslu inn á húsnæðislán að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

  • Erfist séreignarsparnaður?

    Séreignarsparnaður er séreign viðkomandi sem erfist að fullu til lögerfingja og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Láti sjóðfélagi ekki eftir sig maka eða börn rennur séreignin til dánarbúsins.

  • Af hverju ætti ég að leggja fyrir í séreignarsparnað?

    Ávinningur af séreignarsparnaði er margvíslegur og ótvíræður. Með því að leggja a.m.k. 2% launa í séreign fæst 2% mótframlag frá vinnuveitanda sem jafngildir í raun 2% launahækkun.

    Séreignarsparnaður er eitthvert hagstæðasta sparnaðarform sem völ er á og veitir þeim sem það nýta aukið ráðstöfunarfé á efri árum.

    Frá 60 ára aldri er hægt að taka heildar inneign út í einu, fá reglubundnar greiðslur eða stakar þegar þörf krefur.

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður
Sími
5154700
Netfang
gildi@gildi.is
Kennitala
561195 2779
Almennur opnunartími
Mánudaga - fimmtudaga 09:00 - 16:00
Föstudaga 09:00 - 15:00
Símatími lífeyris-, lána-, séreignar- og iðgjaldadeildar
Mánudaga - föstudaga 09:00 - 15:00
  • Póstlisti Gildi
  • Afþakka pappír
  • Persónuverndarstefna
© 2022, Gildi