Fjárfestingarleiðir

Það er persónubundið hvernig fólk hugsar um sparnaðinn sinn og þess vegna skiptir máli að geta valið á milli góðra kosta.

Þess vegna býður Gildi upp á fjölbreyttar fjárfestingarleiðir þannig að þú finnir örugglega leið sem hentar þér!


Sérsniðin Eign að þínum þörfum

Gildi býður upp á fimm mismunandi fjárfestingarleiðir þar sem hægt er að velja hversu mikið þú vilt ávaxta í hlutabréfum eða skuldabréfum. Þú getur einnig takmarkað áhættu með verðtryggðri leið eða ávaxtað alla fjármuni þína í erlendri mynt. Kynntu þér fjölbreyttar fjárfestingarleiðir Gildis hér:


Í Eign - 70/30 eru 70% eigna ávaxtaðarí hlutabréfum og 30% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja taka meiri áhættu með von um aukna ávöxtun yfir lengri tíma.


Í Eign - 50/50 eru 50% eigna ávaxtaðarí hlutabréfum og 50% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja góða ávöxtun yfir lengri tíma en um leið takmarka áhættu.


Í Eign - 20 / 80 eru 20% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 80% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja trygga ávöxtun með takmarkaðri áhættu.


Í Eign - Verðtryggð eru allar eignir ávaxtaðar í verðtryggðum innlánum. Leiðin hentar einkum þeim sem vilja trygga ávöxtun yfir styttri tíma.


Í Eign - Erlend er allt eignasafnið ávaxtað í erlendri mynt. Um 60% eignanna er ávaxtaður í erlendum hlutabréfum og 40% í erlendum skuldabréfum.


Eign - Aldurstengd

Eign - Aldurstengd er ekki fjárfestingarleið heldur sjálfvirk lausn fyrir þá sem það vilja.

Í Eign - aldurstengd passa sérfræðingar Gildis upp á að þú sért ávallt í þeirri fjárfestingarleið sem hentar þér best. Þú færist milli fjárfestingarleiða eftir aldri sbr. meðfylgjandi mynd, en þetta tryggir að þín Eign er alltaf á réttum stað.