Fréttir
29. september 2026
Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka 30. október
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána um 0,25% í samræmi við nýlega hækkun á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands. Breytingin tekur gildi föstudaginn 30. október næstkomandi. Aðrir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.
4. september 2026
Samrunasamningur Gildis og Festu undirritaður
Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs hafa samþykkt samning um sameiningu lífeyrissjóðanna og var samningurinn undirritaður í dag. Samningurinn verður lagður fyrir aukaársfundi beggja sjóða til staðfestingar í byrjun nóvember nk. Aukaársfundur Festu er áætlaður miðvikudaginn 4. nóvember nk. og aukaársfundur Gildis fimmtudaginn 5. nóvember. Fundirnir verða boðaðir formlega síðar í samræmi við samþykktir sjóðanna.
20. júlí 2026
Gildi fjölgar valkostum fyrir séreignarsparnað
Gildi kynnir nú nýtt og aukið vöruúrval í séreignarsparnaði undir heitinu Eign. Hjá sjóðnum verða í boði fimm fjárfestingarleiðir sem gera sjóðfélögum kleift að velja á milli ólíkra leiða eftir væntri ávöxtun, áhættu, fyrirhuguðum fjárfestingartíma og áherslum í eignastýringu. Allar fjárfestingarleiðir sjóðsins eru í boði fyrir bæði séreignarsparnað og tilgreinda séreign.
10. júlí 2026
Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka 9. ágúst
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána um 0,25% í samræmi við nýlega hækkun á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands. Breytingin tekur gildi sunnudaginn 9. ágúst næstkomandi. Aðrir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.
11. júní 2026
Gildi og Festa hefja sameiningarviðræður
Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Í viðræðunum verður m.a. skoðað hvort sameining sé hagfelldur kostur fyrir sjóðfélaga beggja sjóða sem og hvort sameining geti skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og enn öflugri sjóði til framtíðar.
22. apríl 2026
Niðurstaða ársfundar Gildis 2026
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs var haldinn klukkan 17:00 í gær, þriðjudaginn 21. apríl á Hótel Reykjavík Grand. Á fundinum kom fram að heildareignir Gildis í árslok 2025 námu ríflega 1.225 milljörðum króna og jukust um ríflega 98 milljarða milli ára. Nafnávöxtun samtryggingardeildar Gildis nam 7,1% á árinu 2025 og hrein raunávöxtun var 3,3%.
20. apríl 2026
Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána um 0,25%. Breytingin tekur gildi miðvikudaginn 20. maí næstkomandi. Aðrir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.
17. apríl 2026
Ársskýrsla Gildis 2025 komin út
Ársskýrsla Gildis fyrir árið 2025 hefur nú verið birt á vef sjóðsins. Í skýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit yfir starfsemi, rekstur og ávöxtun á liðnu ári.
24. mars 2026
Ársreikningur Gildis 2025 er kominn út
Ársreikningur Gildis-lífeyrissjóðs fyrir árið 2025 er kominn út. Í honum má finna ítarlegar upplýsingar um ávöxtun sjóðsins, rekstur hans og eignasafn í árslok 2025 sem og þróun frá fyrra ári.
17. mars 2026
Ávöxtun Gildis á árinu 2025
Uppgjör Gildis-lífeyrissjóðs vegna ársins 2025 liggur nú fyrir en hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar var 7,1% og raunávöxtun var 3,3%. Enn fremur var ávöxtun allra fjárfestingaleiða sjóðsins jákvæð:
22. janúar 2026
Langar þig að sitja í stjórn hlutafélags?
Gildi-lífeyrissjóður leitar að reyndum einstaklingum sem hafa áhuga á stjórnarsetu í hlutafélögum með stuðningi sjóðsins. Bæði er leitað eftir fólki til að sitja í stjórnum félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands sem og óskráðra félaga þar sem sjóðurinn er meðal stærstu hluthafa.
20. janúar 2026
Verklag við tekjuathugun örorkulífeyris tekur breytingum
Nýtt verklag Gildis-lífeyrissjóðs við tekjuathugun vegna örorkulífeyris, sem meðal annars var kynnt með bréfi til sjóðfélaga í lok síðasta árs, hefur tekið breytingum.
18. desember 2025
31. desember ekki lengur bankadagur
Vakin er athygli á að samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands verður 31. desember ekki lengur bankadagur. Vegna þess þurfa launagreiðendur sem hugðust greiða iðgjöld til Gildis þann 31. desember að flýta greiðslunni um einn dag og greiða 30. desember.
17. desember 2025
Uppfærð hluthafastefna og áherslur ársins 2026
Gildi hefur gefið út uppfærða hluthafastefnu sjóðsins. Uppfærslan tekur meðal annars mið af framkvæmd sjóðsins undanfarin ár og er ætluð til frekari skýringar á áherslum sjóðsins, s.s. varðandi starfskjarastefnur, árangurstengdar greiðslur og aðkomu að vali á stjórnarmönnum hjá skráðum félögum.
15. desember 2025
Lífeyrisgreiðslur í desember 2025
Vegna fjölmargra frídaga yfir hátíðarnar er rétt að vekja athygli á að þeir sem fá lífeyrisgreiðslur eftir á fá greitt út þriðjudaginn 30. desember. Þeir sem fá lífeyri greiddan fyrir fram fá greiðslu föstudaginn 2. janúar.
12. desember 2025
Nýjar og uppfærðar „Mínar síður“
Ný og uppfærð útgáfa af „Mínum síðum“ Gildis fór í loftið í byrjun vikunnar en vinna við uppfærsluna hefur staðið yfir síðustu mánuði. Á uppfærðum vef er meðal annars að finna nýja og öfluga lífeyrisreiknivél. Tenging við lífeyrisgáttina hefur verið endurbætt en þar geta sjóðfélagar séð upplýsingar um lífeyrisréttindi sín í öðrum lífeyrissjóðum landsins. Gagnaöryggi hefur enn fremur verið aukið og notendaflæði bætt.
12. desember 2025
Opnunartímar á skrifstofum Gildis yfir jól og áramót
Opnunartími á skrifstofum Gildis yfir hátíðarnar verður sem hér segir: Þá hátíðisdaga sem starfsemi sjóðsins er lokuð bendum við á að rafrænar umsóknir og…
1. desember 2025
Gildis lækkar óverðtryggða vexti eldri lána
Stjórn Gildis hefur ákveðið að lækka óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána um 0,25%. Breytingin tekur gildi í dag, mánudaginn 1. desember. Verðtryggðir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.
19. nóvember 2025
Breytingar á tekjuathugun vegna örorkulífeyris
Gildi ber nú að taka fullt tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun (TR) þegar örorkulífeyrir frá sjóðnum er reiknaður. Áhrifin á örorkugreiðslur frá Gildi eru mismunandi hjá hverjum og einum. Stærstur hluti þeirra sem fá örorkugreiðslur frá sjóðnum verður ekki fyrir áhrifum, en ef greiðslur breytast verður viðkomandi sjóðfélaga tilkynnt um það sérstaklega.
13. nóvember 2025
Sjóðfélagafundur Gildis: Farið yfir stöðu sjóðsins
Á sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundi Gildis, sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík í gær, miðvikudaginn 12. nóvember, var m.a. farið yfir ávöxtun, rekstur og stöðu sjóðsins á árinu. Á fundinum kom fram að hrein nafnávöxtun á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2,3% og hrein raunávöxtun var því neikvæð um 1,2%. Hrein eign sjóðsins í lok september nam 1.126,7 milljörðum króna og hefur hækkað um 38,1 ma.kr. það sem af er ári.