20. apríl 2026
Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána* um 0,25%. Breytingin tekur gildi miðvikudaginn 20. maí næstkomandi. Aðrir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.
Eftir breytinguna verður vaxtatafla sjóðsins eftirfarandi:
| Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall) | Viðbótarlán (60-70% veðhlutfall) | |
|---|---|---|
| Óverðtryggt – breytilegir vextir | 9,00% | 9,75% |
| Verðtryggt – breytilegir vextir | 4,30% | 5,05% |
| Verðtryggt – fastir vextir | 4,30% | 5,05% |
*Breytingin tekur aðeins til eldri sjóðfélagalána þar sem sjóðurinn veitir ekki lán með breytilegum vöxtum í kjölfar dóms Hæstaréttar sem féll á síðasta ári um skilmála í lánum Íslandsbanka.