14. október 2026
Samrunasamningur lagður fyrir aukaársfund Gildis 5. nóvember
Gildi-lífeyrissjóður boðar til aukaársfundar fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum verður samrunasamningur Gildis og Festu lífeyrissjóðs lagður fram til samþykktar, ásamt breytingum á samþykktum sjóðsins. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Staða og starfsemi sjóðsins á árinu 2026.
- Samrunasamningur við Festu og breytingar á samþykktum vegna sameiningarinnar til samþykktar.
- Tillaga um breytingu á réttindatöflu Gildis vegna uppfærðra tryggingafræðilegra forsendna.
- Önnur mál.
Nánari upplýsingar, fundargögn og aðgang að streymi fundarins má finna á fundarsíðu aukaársfundarins.
Á sameiginlegri upplýsingasíðu Gildis og Festu, www.gildiogfesta.is, má kynna sér helstu atriði fyrirhugaðrar sameiningar. Þar er meðal annars að finna samrunasamninginn og tillögur að breyttum samþykktum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér fundargögnin og mæta á fundinn.
