28. október 2026

Gildi birtir skýrslu um framkvæmd hluthafastefnu 2026

Gildi hefur birt skýrslu um framkvæmd hluthafastefnu 2026 á vef sínum. Stefnan á við um skráð félög sem sjóðurinn á verulegan eignarhlut í. Í skýrslunni er farið yfir helstu áherslur Gildis sem hluthafa á árinu, þær athugasemdir sem sjóðurinn gerði í samskiptum við félög og þær áherslur sem lagt er upp með á árinu 2027.

Helstu málefnin á árinu 2026

Í aðdraganda aðalfunda óskaði Gildi eftir fundum með viðeigandi félögum til að ræða efnistök fundanna og stjórnarhætti félaganna. Starfsfólk sjóðsins fundaði jafnframt með þeim tilnefningarnefndum sem gáfu kost á fundi með hluthöfum. Á grundvelli þessarar vinnu studdi sjóðurinn í flestum tilvikum þær tillögur sem lagðar voru fyrir hluthafafundi.

Engu að síður kom fyrir að sjóðurinn taldi ekki rétt að styðja einstakar tillögur og gerði athugasemdir til að skýra afstöðu sína. Í þeim tilvikum sat sjóðurinn hjá eða greiddi atkvæði gegn viðkomandi tillögum. Í skýrslunni er farið yfir helstu slík mál, en þar voru starfskjarastefnur, fjármagnsskipan félaga og samsetning stjórna áberandi. Sjóðurinn greiddi meðal annars atkvæði gegn eða sat hjá við afgreiðslu starfskjarastefna nokkurra félaga þar sem hann taldi upplýsingar og rökstuðning að baki þeim ekki fullnægjandi. Þá lagðist hann m.a. gegn óskýrri útfærslu kaupréttaráætlunar og gegn opnum og óskilyrtum heimildum stjórna til að hækka hlutafé eða kaupa eigin bréf.

„Samtal við forsvarsmenn félaga í aðdraganda aðalfunda gefur okkur tækifæri til að fara nánar yfir fyrirliggjandi tillögur, ræða mikilvæg málefni sem varða hluthafa og koma sjónarmiðum okkar á framfæri. Í flestum tilvikum styðjum við þær tillögur sem stjórnir leggja fyrir aðal- eða hluthafafundi, en þegar við teljum að betur megi fara gerum við athugasemdir og rökstyðjum afstöðu okkar,“ segir Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis.

Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis-lífeyrissjóðs

Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis-lífeyrissjóðs

Áherslur næsta árs

Í skýrslunni er meðal annars fjallað um áherslur Gildis á árinu 2027 og þau atriði sem sjóðurinn hyggst fylgja eftir í samskiptum sínum við félög á markaði. Helstu áherslurnar eru dregnar saman hér á eftir:

Vel útfærð hvatakerfi

Gildi leggur áherslu á að starfskjarastefnur séu skýrar og byggðar á viðeigandi mælikvörðum. Hvatakerfi stjórnenda eigi að vera hófleg og taka mið af langtímahagsmunum félaga.

Að mati sjóðsins eru langtímahvatakerfi sem eingöngu byggja á umfangsmiklum kaupréttarkerfum almennt ekki besta leiðin til að tvinna saman hagsmuni hluthafa og stjórnenda til lengri tíma. Sé notað kaupréttarkerfi telur sjóðurinn mikilvægt að það sé sniðið að starfsemi viðkomandi félags og að kaupréttum sé úthlutað reglubundið í hóflegum áföngum fremur en með einni stórri úthlutun.

Opnari samskipti við tilnefningarnefndir

Sjóðurinn hvetur til þess að tilnefningarnefndir eigi opnara samtal við hluthafa og rökstyðji með fullnægjandi hætti hvers vegna tiltekin samsetning stjórnar er lögð til.

Góðir viðskiptahættir

Í eigendahlutverki sínu leggur Gildi áherslu á að stuðla að ábyrgum viðskiptaháttum með langtímahagsmuni að leiðarljósi. Sjóðurinn leggur jafnframt áherslu á að félög sem hann fjárfestir í stundi virka og heilbrigða samkeppni á markaði en gætir þess að virða ávallt eðlilega verkaskiptingu milli hluthafa, stjórnar og stjórnenda.

„Hvatakerfi geta verið góð leið til að tengja saman hagsmuni stjórnenda og hluthafa, en þá þurfa þau að taka mið af starfsemi félagsins og byggja á árangri sem stjórnendur geta raunverulega haft áhrif á. Stjórnir félaga þurfa því að huga vel að útfærslu slíkra kerfa,“ segir Davíð Rúdólfsson.

Skýrsla um framkvæmd hluthafastefnu 2026

Forsíða Skýrslu um framkvæmd hluthafastefnu Gildis 2026.

Forsíða Skýrslu um framkvæmd hluthafastefnu Gildis 2026.

Til baka í fréttir