Nýtt verklag Gildis-lífeyrissjóðs við tekjuathugun vegna örorkulífeyris, sem meðal annars var kynnt með bréfi til sjóðfélaga í lok síðasta árs, hefur tekið breytingum.
Aðdragandi málsins er að 31. ágúst síðastliðinn féll úr gildi ákvæði í lögum sem bannaði lífeyrissjóðum að horfa til hækkana á tekjum almannatrygginga við útreikning á örorkulífeyrisgreiðslum. Gildi brást við í nóvember síðastliðnum með því að breyta verklagi við tekjuathugun vegna örorkulífeyris til samræmis við lög og samþykktir sjóðsins. Sjá nánar í frétt um það hér.
Nú hafa stjórnvöld hins vegar snúið ákvörðun sinni við með nýrri löggjöf sem sett var í lok síðasta árs sem leiðir til þess að Gildi mun ekki horfa til almennra hækkana á greiðslum almannatrygginga við tekjuathugun hjá sjóðnum til og með 31. desember 2026. Tekjuathugun mun áfram taka mið af öllum bótaflokkum almannatrygginga.
Gildi mun leiðrétta örorkulífeyri hjá þeim sem urðu fyrir neikvæðum áhrifum vegna framangreinds með janúargreiðslu lífeyris. Rétt er að taka fram að flest þeirra sem fá örorkugreiðslur frá Gildi urðu ekki fyrir neinum áhrifum vegna breytingarinnar á síðasta ári og verða því ekki fyrir neinni breytingu nú.