Gildi-lífeyrissjóður leitar að reyndum einstaklingum sem hafa áhuga á stjórnarsetu í hlutafélögum með stuðningi sjóðsins. Bæði er leitað eftir fólki til að sitja í stjórnum félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands sem og óskráðra félaga þar sem sjóðurinn er meðal stærstu hluthafa.
Umsækjendur þurfa að uppfylla almenn hæfisskilyrði laga um stjórnarsetu en aðrar áherslur eða skilyrði af hálfu sjóðsins geta verið mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni.
Val á stjórnarmönnum sem Gildi tilnefnir eða styður til stjórnarsetu byggir á faglegu ferli þar sem kannaðir eru þættir eins og menntun, fagleg þekking, reynsla, færni og hæfi. Sérstaklega þarf að huga að samsetningu stjórna hlutafélaga með hliðsjón af fjölbreyttri þekkingu og kynjahlutfalli, og að ekki séu til staðar hagsmunaárekstrar milli einstakra stjórnarmanna og viðkomandi félags.
Allar umsóknir sem sjóðnum berast eru trúnaðarmál. Gildi mun hafa samband ef sjóðurinn hefur hug á að tilnefna eða styðja viðkomandi umsækjanda til stjórnarsetu.