Aukaársfundur Gildis fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:00. Nánari upplýsingar á fundarsíðu.

3. nóvember 2026

Íslenska lífeyriskerfið meðal þeirra bestu í heimi

Íslenska lífeyriskerfið er áfram meðal þeirra bestu í heimi samkvæmt alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Marsh CFA Institute Global Pension Index 2026 (áður þekkt sem Mercer CFA Institute Global Pension Index).

Ísland hafnar í þriðja sæti af 55 lífeyriskerfum sem voru metin og fær A-einkunn, hæsta einkunnaflokk vísitölunnar. Vísitalan metur lífeyriskerfi út frá þremur meginþáttum: nægjanleika lífeyrisréttinda, sjálfbærni til framtíðar og trausti og umgjörð kerfisins. Ísland fær A-einkunn í öllum þremur þáttunum. Þetta er í sjötta sinn sem íslenska lífeyriskerfið er metið í samanburðinum. Frá fyrstu þátttöku árið 2021 hefur það ávallt verið í einu af þremur efstu sætunum og fengið A-einkunn.

Heildareinkunn Íslands er 84,0 stig, óbreytt frá fyrra ári. Holland er í efsta sæti með 85,8 stig og Danmörk í öðru sæti með 84,1 stig.

Niðurstöðurnar staðfesta sterka stöðu íslenska lífeyriskerfisins í alþjóðlegum samanburði og minna jafnframt á að mikilvægt er að viðhalda styrkleikum þess og þróa kerfið áfram með langtímahagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi.

Sjá nánar á síðu Marsh hér.

Til baka í fréttir