Skattlagning lífeyrisgreiðslna

Tilkynna þarf í hvaða skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera ef heildartekjur lífeyrisþega, frá sjóðnum og öðrum ef við á, eru samtals meira en 409.986 kr á mánuði. Sjóðurinn stendur skil á staðgreiðslu skatta en hver og einn þarf að láta vita hve hátt hlutfall af skattkorti hann vill nýta hjá sjóðnum.

Árið 2023 er persónuafsláttur 59.665 kr/mán og skattleysismörk lífeyrisþega þá 189.714 kr. á mánuði.

Lífeyrisþegar geta nýtt allt að 100% af ónýttu skattkorti maka til skattalækkunar. Við fráfall maka geta lífeyrisþegar nýtt skattkort makans í 9 mánuði frá og með andlátsmánuði.

RSK: Ítarlegar upplýsingar um skatta og greiðslur þeirra.

Af tekjum að 409.986 kr/mán
31,45%
Af fjárhæð frá 409.987 til 1.151.012 kr/mán
37,95%
Af fjárhæð yfir 1.151.012 kr/mán
46,25%