Ný lán

Hér má finna allar upplýsingar um ný lán hjá Gildi, hvort sem það er vegna kaupa á fasteign eða vegna endurfjármögnunar.

Allt sem þú þarft að vita um:

  • Gildi býður upp á verðtryggð lán með föstum vöxtum vegna fasteignakaupa og lánað er fyrir allt að 70% af kaupverði fasteignar. Veitt eru grunnlán, 60% af kaupverði og viðbótarlán milli 60%-70%
  • Ekki er í boði að fara í gegnum greiðslumat hjá sjóðnum fyrr en samþykkt kauptilboð og lánsumsókn liggur fyrir.
  • Hámarkslánsfjárhæð er kr. 75.000.000 samanlagt við lánsupphæð á fyrri veðrétti. Ekki er lánað hærra en sem nemur 100% af brunabótamati að viðbættu lóðarmati.
  • Gildi lánar í samfelldri röð frá og með fyrsta veðrétti. Þó er heimilt að veita undantekningu frá framangreindri kröfu um fyrsta veðrétt og samfellda veðröð ef lánsfjárhæð frá öðrum lánveitendum er innan við 20% að verðmati eignar.
  • Kaupendur geta ekki verið fleiri en tveir þar sem aðeins er lánað til einstaklinga eða sambúðarmaka.
  • Með lánsumsókn þarf að fylgja afrit af undirrituðu kauptilboði, söluyfirlit fyrir eignina sem verið er að selja, greiðsluáætlun frá TR (ef á við) og álagningarseðill frá skattinum (ef á við).
  • Ef verið er að kaupa nýbyggingu og ekki er komið brunabótamat fyrir eignina þarf að senda afrit af smíðatryggingu fyrir eignina.
  • Hægt er að endurfjármagna fyrir allt að 70% af fasteignamati. Veitt eru grunnlán, 60% af fasteignamati og viðbótarlán milli 60%-70%.
  • Hámarkslánsfjárhæð er kr. 75.000.000 samanlagt við lánsupphæð á fyrri veðrétti. Ekki er lánað hærra en sem nemur 100% af brunabótamati að viðbættu lóðarmati.
  • Gildi lánar í samfelldri röð frá og með fyrsta veðrétti. Þó er heimilt að veita undantekningu frá framangreindri kröfu um fyrsta veðrétt og samfellda veðröð ef lánsfjárhæð frá öðrum lánveitendum er innan 20% af verðmæti fasteignar.
  • Ef verið er að endurfjármagna lán frá öðrum lánveitenda þarf alltaf að fara í gegnum greiðslumat, þó að greiðslubyrði fasteignalána sé að lækka.
  • Með lánsumsókn þarf að fylgja greiðsluáætlun frá TR (ef á við) og álagningarseðill frá skattinum (ef á við).
  • Gildi sér um að greiða upp fasteignalán frá öðrum lánastofnunum en sjóðurinn getur ekki greitt upp aðrar skuldir sem ekki hvíla á fasteigninni, svo sem smálán eða yfirdrátt.
  • Ef til stendur að hækka áhvílandi lán eða breyta vaxtaformi, þarf að sækja um endurfjármögnun.
  • Ekki er þörf á endurfjármögnun ef til stendur að breyta lánstíma lána eða afborgunartegund láns. Þessu er hægt að breyta með skilmálabreytingu.
  • Lífeyrissjóðurinn framkvæmir greiðslumat og metur lánshæfi umsækjanda.
  • Aðeins er hægt að stofna greiðslumat eftir að búið er að stofna lánsumsókn.
  • Heimilt er að gera undantekningu frá greiðslumati ef verið er að endurfjármagna lán frá lífeyrissjóðnum sem miðar einungis að uppgreiðslu eldra fasteignaláns eða - lána ásamt lántökukostnaði. Breyting má enn fremur ekki hafa í för með sér hækkun reglulegra endurgreiðslna.
  • Miðað er við reglulegar 12 mánaða tekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá frá ríkisskattstjóra.
  • Í greiðslumati er ekki tekið tillit til leigutekna.
  • Maki má ekki vera með í greiðslumati nema að hann sé skráður eigandi eignarinnar.
  • Seðlabankinn hefur sett reglur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána. Þær fela í sér að greiðslubyrði fasteignalána má að hámarki vera 35% af ráðstöfunartekjum nema ef um fyrstu kaup er að ræða, þá má hún fara í 40% að hámarki.
  • Viðmið fyrir útreikning á hámarks greiðslubyrði samkvæmt reglum SÍ er jafnar greiðslur. Ef lánið er óverðtryggt er reiknað með 40 ára lánstíma og samningsvöxtum en þó að lágmarki 5,5% vöxtum. Fyrir verðtryggð lán er reiknað með 25 ára lánstíma og samningsvöxtum en þó að lágmarki 3% vöxtum, þótt greiðslufyrirkomulag og lánstími lánveitingarinnar kunni að vera annar.

Eftirfarandi á við um fasteignalán hjá Gildi:

  • Aðeins er lánað gegn veði í íbúðarhúsnæði sem ætlað er sem lögheimili lántaka.
  • Aðeins er veitt lán á eign sem er í fullri eigu lántaka (einstaklingur) eða í sameign við maka (hjón eða óvígð sambúð).
  • Ef umsækjendur eru tveir þurfa viðkomandi að vera í hjónabandi eða óvígðri sambúð til að geta sótt um sameiginlega lántöku hjá sjóðnum, báðir aðilar þurfa að vera eigendur að íbúðarhúsnæðinu og fara saman í greiðslumat.
  • Ekki er heimilt að sækja um með foreldri, systkini eða þriðja aðila.
  • Sé íbúðarhúsnæði eingöngu í eigu einstaklings skal í greiðslumati eingöngu miða við tekjur, eignir og skuldir hans.
  • Ekki er veitt lán gegn lánsveði.
  • Ekki er lánað gegn veði í sumarhúsi.