Gildi-lífeyrissjóði var ekki kunnugt um hluthafafund Klakka síðastliðinn mánudag þar sem tillaga um mögulegar bónusgreiðslur til stjórnar og stjórnenda var afgreidd. Þar af leiðandi var sjóðurinn ekki upplýstur um málið og gat því ekki tekið afstöðu til tillögunnar.
Sjóðurinn hefur nú óskað eftir frekari upplýsingum um hvað felst í þeirri tillögu sem samþykkt var um kaupaukagreiðslur á nefndum hluthafafundi.