Hrein eign Framtíðarsýnar 1 nam ríflega 3,3 milljörðum króna í árslok 2023. Eignir deildarinnar þróuðust með eftirfarandi hætti á árinu 2023 (í milljónum króna).
Hér fyrir neðan má finna helstu upplýsingar um ávöxtun, eignasamsetningu og fjárfestingastefnu Framtíðarsýnar 1.
Ítarlegar upplýsingar má finna í ársskýrslum sjóðsins sem hægt er að nálgast hér.
Hrein nafnávöxtun Framtíðarsýnar 1 var 5,7% á árinu 2023 eða sem nemur -2,1% hreinni raunávöxtun. Fimm ára meðalraunávöxtun nemur nú 2,6% en 3,3% sé horft til síðustu tíu ára.
Í Framtíðarsýn 1 eru 35% safnsins að jafnaði í hlutabréfum og 65% í skuldabréfum. Þegar stór hluti safnsins er bundinn í hlutabréfum má búast við meiri sveiflum í ávöxtun en um leið er vænt ávöxtun hærri til lengri tíma litið.
Heimilað frávik - hámark |
---|
100% |
Verðbréfasafn Framtíðarsýnar 1 samanstendur af fjölda eigna sem skiptast í eftirfarandi flokka í árslok 2023.