Gildi merki
16. apríl 2020

Ársskýrsla Gildis

Ársskýrsla Gildis árið 2019 hefur nú verið birt á heimasíðu sjóðsins. Í skýrslunni, sem er 143 blaðsíður að lengd, er að finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og stöðu sjóðsins á nýliðnu ári.

Gróflega má skipta skýrslunni í sex hluta en þeir eru ávarp stjórnarformanns, verðbréfamarkaðir, samtryggingardeild, séreignardeild, starfsemi Gildis og ársreikningur. Aftast í skýrslunni má síðan finna yfirlit á ensku.

Vakin er sérstök athygli á að á blaðsíðum 6, 7, 17, 43 og 53 er að finna yfirlitssíður þar sem hægt er á einfaldan hátt að fletta upp á lykiltölum í rekstri sjóðsins á síðasta ári, svo sem ávöxtun, þróun eignasafnsins, kostnaði við rekstur o.sfrv.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér skýrsluna enda er þar að finna upplýsingar um nánast allt sem viðkemur starfsemi sjóðsins. Mikil vinna hefur verið lögð í að setja upplýsingar í skýrslunni fram á einfaldan og skýran hátt í samræmi við stefnu sjóðsins um upplýsingagjöf til sjóðfélaga og almennings.

Ársfundur sjóðsins hefði að öllu eðlilegu átt að fara fram í dag, 16. apríl, en vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar var nauðsynlegt að fresta fundinum. Upplýsingar um fundarstað og -tíma verða veittar á heimasíðu Gildis um leið og þær liggja fyrir.

  • Gildi kallar eftir endurskoðun á reglum um yfirtökutilboð15. des 2020
  • Afgreiðslutími yfir jól og áramót14. des 2020
  • Umsóknarfrestur um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar að renna út10. des 2020
  • Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána lækka10. des 2020
Gildi merki

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður

Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00

Föstudaga 09:00 – 15:00

Sími
515 4700

Netfang
gildi@gildi.is

Kennitala
561195 2779

Póstlisti Gildi
Afþakka pappír

Við notum vafrakökur. Ef þú heldur áfram að nota þessa síðu gerum við ráð fyrir að þú samþykkir notkunina.Ég samþykkiNánar