Í Eign - Erlend er allt eignasafnið ávaxtað í erlendri mynt.
Um 60% eignanna er ávaxtaður í erlendum hlutabréfum og 40% í erlendum skuldabréfum.
Eign - Erlend er ný fjárfestingarleið hjá Gildi þannig að upplýsingar um ávöxtun liggja ekki fyrir.
Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign - Erlend. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.
Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingastefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan. Þar má einnig finna upplýsingar um eignasamsetningu fjárfestingaleiðarinnar í árslok 2025.
| Heimilað frávik - hámark |
|---|
| 50,0% |
| 15,0% |
| 50,0% |
| 70,0% |
| 70,0% |
Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign - Erlend hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.