8. janúar 2024

Vextir verðtryggðra sjóðfélagalána Gildis hækka

Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka vexti breytilegra verðtryggðra sjóðfélagalána um 0,50% og vexti fasta verðtryggðra lána um 0,35%. Eftir hækkunina verða vextir breytilegra verðtryggðra grunnlána 3,60% og viðbótarlána 4,35%. Fastir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána verða 3,80% og viðbótarlána 4,55%.

Hækkun fastra vaxta hefur þegar tekið gildi en breytilegir vextir hækka 13. febrúar næstkomandi.

Eftir að breytingin hefur að fullu tekið gildi 13. febrúar mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:

Grunnlán (allt að 65% veðhlutfall) Viðbótarlán (65-75% veðhlutfall)
Verðtryggð – fastir vextir 3,80% 4,55%
Verðtryggð – breytilegir vextir 3,60% 4,35%
Óverðtryggð – breytilegir vextir 10,35% 11,10%