2. október 2018

Umgjörð áhættustýringar Gildis í góðu horfi

Umgjörð áhættustýringar hjá Gildi-lífeyrissjóði er almennt í góðu horfi og að meginstefnu í samræmi við þær kröfur sem lög og reglur mæla fyrir um. Þetta er niðurstaða athugunar FME á umgjörð áhættustýringar Gildis sem hófst í febrúar 2018, en niðurstöður hennar voru birtar á vef FME í dag.

Markmið athugunarinnar var að kanna hvort umgjörð áhættustýringar hjá Gildi og öðrum lífeyrissjóðum væri í samræmi við þær kröfur sem lög og reglur kveða á um. Í athuguninni var farið yfir áhættustefnu og áhættustýringarstefnu Gildis og kannað hvernig þær samræmast þeim kröfum sem settar eru fram í lögum og reglugerðum. Þá var jafnframt farið yfir skráða ferla og verklagsreglur sem sjóðurinn styðst við samkvæmt framansögðu.

Eina athugasemd FME er að í núverandi áhættustefnu sé áhættuþol sjóðsins, sem og mörk um áhættuvilja stjórnar, ekki sett fram á mælanlegan hátt þar sem við á með fullnægjandi hætti eftir áhættuþáttum. Sambærileg athugasemd kom fram við áhættustefnur annarra lífeyrissjóða sem FME hefur haft til skoðunar síðustu mánuði.

Hægt er að lesa gagnsæistilkynningu Fjármálaeftirlitsins í heild sinni hér.