3. júlí 2019

Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán framlengd

Stjórnvöld samþykktu á dögunum að framlengja um tvö ár heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á húsnæðislán. Þeir sem þegar eru að nýta sér úrræðið ættu að hafa fengið tölvupóst frá ríkisskattstjóra þar sem vakin er athygli á málinu. Þar kemur fram að nauðsynlegt er að skrá sig inn á vefinn leidretting.is og staðfesta að framlengingar sé óskað.

Til að tryggja að ekki verði rof á greiðslum inn á húsnæðislán þarf að sækja um framlenginguna fyrir 30. september næstkomandi.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ríkisskattstjóra.

 


Mynd: Skjáskot af vefnum leidretting.is