23. september 2021

Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að hækka óverðtryggða breytilega vexti sjóðfélagalána um tuttugu punkta og tekur hækkunin gildi föstudaginn 5. nóvember.

Vextir óverðtryggðra grunnlána verða eftir breytinguna 3,65% og viðbótarlána 4,40%. Vextir verðtryggðra lána taka ekki breytingum.