Gildi merki
22. maí 2020

Opnað fyrir heimsóknir

Skrifstofur Gildis-lífeyrissjóðs hafa nú verið opnaðar fyrir heimsóknir sjóðfélaga. Vegna tveggja metra reglu þarf sjóðurinn þó að setja skorður á hversu mörgum er sinnt í einu sem getur leitt til tafa í afgreiðslu á skrifstofunum. Við hvetjum því sjóðfélaga sem hafa á því möguleika að nýta sér rafrænar lausnir, m.a. til að koma gögnum til skila. Síðustu vikur hefur gengið vel að leysa mál með rafrænum lausnum sjóðsins, sem og í símtölum og tölvupóstum og full ástæða er því til að hvetja sjóðfélaga til að nýta sér þá möguleika áfram.

Hægt er að senda almennar fyrirspurnir á netfangið gildi@gildi.is. Netföng deilda eru sem hér segir:

  • Lífeyrir: lifeyrir@gildi.is
  • Lán: lan@gildi.is
  • Séreign: sereign@gildi.is
  • Iðgjöld: idgjold@gildi.is

 

Starfsfólk sjóðsins svarar símtölum á opnunartíma í s. 515-4700. Opið er frá 09:00 til 16:00 alla virka daga nema föstudaga þegar skrifstofur sjóðsins loka klukkan 15:00.

Upplýsingar um inneign, réttindi og lán eru á sjóðfélagavef. Á vef sjóðsins, www.gildi.is, er hægt nálgast umsóknir um lífeyri, lán, séreign o.s.frv. Á launagreiðendavef má finna upplýsingar um greiðslustöðu launagreiðanda á hverjum tíma. Jafnframt er þar hægt að skrá og senda skilagreinar til sjóðsins.

Hægt er að skila skjölum til sjóðsins í póstkassa við skrifstofu Gildis við Guðrúnartún 1 en einnig verður mögulegt að skila inn gögnum í móttöku á annarri hæð. Enn um sinn má búast við að umsóknir um lán og önnur erindi taki lengri tíma en alla jafna og biðjumst við velvirðingar á því.

  • Lokað föstudaginn 27. maí og mánudaginn 30. maí23. maí 2022
  • Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hækka23. maí 2022
  • Niðurstöður ársfundar Gildis 202229. apr 2022
  • Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 202226. apr 2022
Gildi merki

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður

Almennur opnunartími

Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00

Föstudaga 09:00 – 15:00

Símatími lífeyris-, lána-,
séreignar- og iðgjaldadeildar

Mánudaga – föstudaga 09:00 – 15:00

Sími
515 4700

Netfang
gildi@gildi.is

Kennitala
561195 2779

Póstlisti Gildi
Afþakka pappír

Gildi fyrirmyndar fyrirtæki