Gildi merki
24. október 2018

Ný hluthafastefna Gildis

Stjórn Gildis samþykkti á fundi sem haldinn var  18. október síðastliðinn breytingar á hluthafastefnu sjóðsins. Markmið breytinganna var að uppfæra stefnuna til samræmis við framkvæmd hennar undanfarin misseri en stefnunni var síðast breytt árið 2015. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Umfjöllun og framsetning stefnunnar um starfskjör stjórnenda, starfskjarastefnur og skýrslur um framkvæmd hluthafastefnu er skýrð frekar, m.a. í kjölfar bókana sem Gildi lagði fram á hluthafafundum nokkurra fyrirtækja á þessu ári.

Bætt er við stefnuna umfjöllun varðandi afstöðu til heimilda sem hluthafar veita stjórnum fyrirtækja á hluthafafundum til samræmis við framkvæmd, tilnefningarnefndir, umfjöllun varðandi fjármagnsskipan félaga og umfjöllun varðandi samkeppnismál.

Hægt er að kynna sér nýja hluthafastefnu Gildis hér.

  • Niðurstöður ársfundar Gildis 202229. apr 2022
  • Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 202226. apr 2022
  • Eignir Gildis í árslok 2021 námu 916 milljörðum króna19. apr 2022
  • Ársfundur Gildis 202208. apr 2022
Gildi merki

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður

Almennur opnunartími

Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00

Föstudaga 09:00 – 15:00

Símatími lífeyris-, lána-,
séreignar- og iðgjaldadeildar

Mánudaga – föstudaga 09:00 – 15:00

Sími
515 4700

Netfang
gildi@gildi.is

Kennitala
561195 2779

Póstlisti Gildi
Afþakka pappír

Gildi fyrirmyndar fyrirtæki