Gildi merki
20. október 2021

Íslenska lífeyriskerfið kemur best út í alþjóðlegri athugun

Íslenska lífeyriskerfið er í efsta sæti í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute standa að og birt var í vikunni. Samanburðurinn sýnir að íslenska lífeyriskerfið er sjálfbærara, skilar meiri réttindum og hefur yfir meiri auðlindum að ráða en lífeyriskerfi annarra þjóða auk þess að njóta talsverðs trausts í samanburði við önnur kerfi. Meðal þeirra skýringa sem gefnar eru fyrir því að Ísland er í efsta sæti á vísitölulistanum eru þessar:

  • Góðir stjórnarhættir og regluverk lífeyrissjóða í kerfi með góða eiginleika.
  • Samtryggingarlífeyrissjóðir sem allt launafólk á aðild að með hárri iðgjaldaprósentu. Það leiðir til þess að verulegar eignir eru lagðar til hliðar fyrir framtíðina.
  • Tiltölulega ríflegur lífeyrir frá ríkinu (Tryggingastofnun)

Íslenska lífeyriskerfið fær í samanburðinum 84,2 stig af 100 mögulegum en næst í röðinni eru Holland (83,5 stig), Danmörk (82,0), Ísrael (77,1) og Noregur (75,2). Aðeins Ísland, Holland og Danmörk ná yfir 80 stigum og teljast því búa við öflug lífeyriskerfi sem skila góðum réttindum, eru sjálfbær og með trausta umgjörð. Í neðstu þremur sætunum á listanum eru Taíland (40,6), Argentína (41,5) og Filippseyjar (42,7).

Í niðurstöðum eru eftirtalin þrjú atriði þó talin getað hækkað lífeyrisvísitölu Íslands enn frekar:

  • að lækka skuldir heimila sem hlutfall af vergri landsframleiðslu
  • að hækka lífeyrisaldur eftir því sem lífslíkur halda áfram að aukast
  • að lækka skuldir ríkisins sem hlutfall af vergri landsframleiðslu

Þessi samanburður lífeyriskerfa byggist annars vegar á talnaefni frá Efnahags- og framfarastofnunni – OECD og öðrum fjölþjóðastofnunum og gagnabönkum og hins vegar á upplýsingum sem sérfræðingar hjá Mercer og fleiri hafa aflað í viðkomandi ríkjum.

Þeir aðilar sem standa að samningi við Mercer-CFA Insitute fyrir Íslands hönd eru Landssamtök lífeyrissjóða, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanki Íslands.

Ítarefni:
  • Frétt um málið á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða
  • Frétt um málið á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytis
  • Fréttatilkynning Mercer CFA um lífeyristilkynninguna
  • Skýrsla Mercer CFA
  • Lokað föstudaginn 27. maí og mánudaginn 30. maí23. maí 2022
  • Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hækka23. maí 2022
  • Niðurstöður ársfundar Gildis 202229. apr 2022
  • Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 202226. apr 2022
Gildi merki

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður

Almennur opnunartími

Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00

Föstudaga 09:00 – 15:00

Símatími lífeyris-, lána-,
séreignar- og iðgjaldadeildar

Mánudaga – föstudaga 09:00 – 15:00

Sími
515 4700

Netfang
gildi@gildi.is

Kennitala
561195 2779

Póstlisti Gildi
Afþakka pappír

Gildi fyrirmyndar fyrirtæki