18. maí 2021

Heimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar framlengd

Heimild til sérstakrar útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna COVID-19 hefur verið framlengd til ársloka 2021. Vakin er athygli á að sjóðfélagar geta nálgast upplýsingar um inneign sína í séreignardeild sjóðsins á sjóðfélagavef Gildis. Umsókn um útgreiðslu úr séreignardeild er einnig aðgengileg á sjóðfélagavefnum en hægt er að komast beint í hana með því að smella hér.
Nánari upplýsingar:


  • Hámarksúttekt fyrir einstakling er 12 milljónir króna.

  • Hámarksgreiðsla á mánuði er 800.000 krónur.

  • Tekjuskattur er innheimtur af greiðslum úr séreignarsjóði.

  • Miða skal við inneign 1. apríl 2021 og er umsóknarfrestur til 1. janúar 2022.

  • Umsóknir sem berast fyrir 19. dag mánaðar greiðast út um næstu mánaðamót.

  • Ath. að heimildin nær ekki til tilgreindrar séreignar.