Gildi merki
30. júní 2017

Hækkun iðgjalds 1. júlí – val um ráðstöfun viðbótariðgjalds

Iðgjald atvinnurekenda í lífeyrissjóði fólks á almennum vinnumarkaði hækkar um 1,5% 1. júlí 2017 og verður þá 10% en iðgjald launþega verður óbreytt áfram 4% (samtals 14% lágmarksiðgjald).

Er þetta í samræmi við ákvæði kjarasamninga ASÍ og SA frá 21. janúar 2016. Samhliða gefst sjóðfélögum sem þess óska tækifæri til að ráðstafa að hluta eða öllu leyti því iðgjaldi sem er umfram 12% (nú 2%) í tilgreinda séreign. Hjá Gildi geta einnig þeir sjóðfélagar sem þegar greiða 15,5% iðgjald ráðstafað allt að 3,5% í tilgreinda séreign.

Tilgreind séreign er önnur tegund séreignarsparnaðar en áður hefur boðist og um hana gilda aðrar reglur. Í 22. gr. samþykkta Gildis-lífeyrissjóðs er að finna ákvæði sem gilda um tilgreinda séreign.

  • Allt viðbótariðgjaldið fer í samtryggingardeild nema sjóðfélagi óski eftir að því verði ráðstafað í tilgreinda séreign.
  • Iðgjaldið greiðist til þess sjóðs sem sjóðfélagi á aðild að.
  • Mikilvægt er að sjóðfélagar geri sér grein fyrir að réttindi í samtryggingardeild geta falið í sér verðmæt tryggingaréttindi.
  • Með ráðstöfun iðgjalds í tilgreinda séreign ávinnst ekki, hvað þau iðgjöld snertir, réttur til ævilangs ellilífeyris, né örorku- og makalífeyris með framreikningi heldur byggir sjóðfélagi upp sjóð sem er séreign viðkomandi.
  • Sjóðfélagi þarf að taka upplýsta ákvörðun um ráðstöfun iðgjalds og tilkynna sínum lífeyrissjóði um ráðstöfun iðgjaldsins.
  • Sjóðfélagi má hvenær sem er breyta því hvernig hann ráðstafar iðgjaldi umfram 12%.
  • Sjóðfélagar í Gildi geta valið um þrjár mismunandi fjárfestingarleiðir.
  • Hægt verður að byrja að taka út tilgreindan séreignarsparnað frá 62 ára aldri og dreifist þá útborgun á þau ár sem vantar í 67 ára aldur.
  • Undantekning ef inneign nemur lægri fjárhæð en 1.277.000 kr. (m.v. júní 2017).
  • Tilgreindan séreignarsparnað verður ekki unnt að nota til að safna skattfrjálst til húsnæðiskaupa eða til að greiða skattfrjálst niður húsnæðislán.
  • Tilgreind séreign erfist

 

Hér að neðan er eyðublað sem sjóðfélagi þarf að fylla út vilji hann ráðstafa iðgjaldi umfram 12% í tilgreinda séreign. Það er hægt að gera með rafrænum hætti með rafrænni undirskrift eða með því að fylla út eyðublaðið, prenta út og undirrita og koma því til sjóðsins. Í eyðublaðinu er að finna ítarlegar upplýsingar um tilgreindu séreignina og hvaða þættir það eru sem sjóðfélagi þarf að líta til áður en hann tekur ákvörðun um hvernig hann vill ráðstafa iðgjaldinu.

Tilgreind séreign pdf Ráðstöfun á iðgjaldi í tilgreinda séreign með rafrænum skilríkjum.

Ef þú hefur ekki rafræn skilríki getur þú fyllt út eyðublaðið hér að neðan
  • Ráðstöfun á iðgjaldi í tilgreinda séreign

Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Gildis á skrifstofu sjóðsins í Guðrúnartúni 1 eða í síma 515 4700.

  • Niðurstöður ársfundar Gildis 202229. apr 2022
  • Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 202226. apr 2022
  • Eignir Gildis í árslok 2021 námu 916 milljörðum króna19. apr 2022
  • Ársfundur Gildis 202208. apr 2022
Gildi merki

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Hafnarstræti 9, 400 Ísafjörður

Almennur opnunartími

Mánudaga – fimmtudaga 09:00 – 16:00

Föstudaga 09:00 – 15:00

Símatími lífeyris-, lána-,
séreignar- og iðgjaldadeildar

Mánudaga – föstudaga 09:00 – 15:00

Sími
515 4700

Netfang
gildi@gildi.is

Kennitala
561195 2779

Póstlisti Gildi
Afþakka pappír

Gildi fyrirmyndar fyrirtæki