3. maí 2017

Breytingar á seðilgjöldum hjá Íslandsbanka

Seðilgjöld sjóðfélagalána hjá Gildi-lífeyrissjóði sem innheimt eru hjá Íslandsbanka breytast 1. júní nk. samkvæmt meðfylgjandi gjaldskrá bankans. Lántakar þurfa að hafa samband við Íslandsbanka ef þeir vilja breyta greiðsluleið sinni.