10. desember 2016

Breyting á útlánsvöxtum sjóðfélagalána.

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur tekið ákvörðun um breytingu á breytilegum vöxtum verðtryggðra og óverðtryggðra sjóðfélagalána Gildis.

Breytilegir vextir grunnlána verða 3,45% (voru 3,35%) og breytilegir vextir viðbótarlána verða 4,20% (voru 4,10%).

Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána verða 6,40% (voru 6,75%). Breytilegir vextir óverðtryggðra viðbótarlána verða 7,15% (voru 7,50%).

Breytingin tekur gildi frá og með 15. nóvember næstkomandi.