4. september 2017

Breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að lækka vexti á bæði verðtryggðum og óverðtryggðum sjóðfélagalánum með breytilegum vöxtum frá og með 5. september 2017.

Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,35% í 3,25% og verðtryggðra viðbótarlána lækka úr 4,10% í 4,00%.

Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána lækka úr 6,05% í 5,70% og óverðtryggðra viðbótarlána úr 6,80% í 6,45%.

Kjör sjóðfélagalána hjá Gildi-lífeyrissjóði eru áfram með þeim hagstæðustu sem bjóðast á íbúðalánamarkaði.

Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum taka breytingum yfir lánstímann samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins. Við ákvörðun vaxta er einkum horft til ávöxtunarkröfu á skráðum verðtryggðum skuldabréfum með ríkisábyrgð, vaxtakjara á markaði á sambærilegum lánum og áhættumats sjóðsins.

Vextir á óverðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum taka breytingum yfir lánstímann samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins. Við ákvörðun vaxta er einkum horft til stýrivaxta Seðlabanka Íslands, innlánavaxta, ávöxtunarkröfu á skráðum skuldabréfum með ríkisábyrgð, sögulegrar og væntrar verðbólgu, vaxtakjara á markaði á sambærilegum lánum og áhættumats sjóðsins.