7. nóvember 2022

Breytilegir vextir hækka 12. desember

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að hækka breytilega vexti sjóðfélagalána um 20 punkta frá og með 12. desember næstkomandi.

Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána verða eftir hækkunina 6,90% og viðbótarlána 7,65%.

Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána verða 2,00% og viðbótarlána 2,75%.

Fastir vextir verðtryggðra lána taka ekki breytingum.

Frá og með 12. desember mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:

Grunnlán (allt að 65% veðhlutfall) Viðbótarlán (65-75% veðhlutfall)
Verðtryggt - fastir vextir 2,80% 3,55%
Verðtryggt - breytilegir vextir 2,00% 2,75%
Óverðtryggt - breytilegir vextir 6,90% 7,65%