20. júní 2019
Breytilegir óverðtryggðir vextir lækka
Stjórn Gildis hefur samþykkt að lækka breytilega óverðtryggða vexti sjóðfélagalána um 20 punkta. Breytilegir óverðtryggðir vextir grunnlána lækka úr 5,8% í 5,6% og breytilegir vextir óverðtryggðra viðbótarlána lækka úr 6,55% í 6,35%. Breytingin tekur gildi 5. ágúst næstkomandi.
Eftir breytinguna verður vaxtatafla sjóðsins sem hér segir:
Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall) | Viðbótarlán (60 - 70% veðhlutfall) | |
---|---|---|
Verðtryggð lán (fastir vextir) | 3,55% | 4,3% |
Verðtryggð lán (breytilegir vextir) | 2,7% | 3,45% |
Óverðtryggð lán (breytilegir vextir) | 5,6% | 6,35% |