Eins og fram hefur komið mun Gildi koma til móts við þá sem tekið hafa lán hjá sjóðnum og sjá fram á erfiðleika við að standa í skilum vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar og verður svigrúm veitt eftir því sem lög og reglur heimila.
Ath. að sjóðfélagar sem sjá fram á að geta greitt af lánum sínum eru hvattir til að gera það enda verður greiðslum aðeins frestað en þær falla ekki niður. Meðan á greiðslufresti stendur leggjast vextir ofan á höfuðstól sem þýðir að afborganir hækka þegar greiðslufresti lýkur.Nú er hægt að sækja um greiðslufrest á eftirfarandi hátt: Vakin er athygli á að eftirfarandi kostnaður getur fylgt umsókn um greiðslufrest.
- Skjalagerðargjald kr. 3.000
- Veðbandayfirlit kr. 1.200
- Þinglýsingargjald kr. 2.500
- Sendingarkostnaður til Íslandsbanka kr. 950
Lánadeild Gildis veitir allar frekari upplýsingar. Netfangið er
lan@gildi.is.
Sjóðfélagar eru beðnir um að sýna því skilning að afgreiðsla mála hjá lánadeild sjóðsins tekur lengri tíma en venjulega vegna mikils álags.
Vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar
Gildi-lífeyrissjóður undirbýr nú að opna fyrir úttektir á séreignarsparnaði í samræmi við áform ríkisstjórnarinnar þess efnis. Beðið er eftir nákvæmri útfærslu sem mun ekki liggja fyrir fyrr en lög um málið hafa verið afgreidd frá Alþingi. Samkvæmt yfirlýsingu stjórnvalda er verið að undirbúa eftirfarandi:
- Stefnt er að því að hægt verði að taka á móti umsóknum og byrja að greiða út í apríl 2020.
- Umsóknarfresti um útgreiðslu ljúki 1. janúar 2021.
- Hámarksúttekt fyrir einstakling verði 12 milljónir króna.
- Hámarksgreiðsla á mánuði verði 800.000 krónur.
- Tekjuskattur er innheimtur af greiðslum úr séreignarsjóði.
Nánari upplýsingar um málið, þar á meðal hvenær og hvernig hægt verður að sækja um útgreiðslur úr séreignardeild Gildis, verða birtar hér á heimasíðu sjóðsins um leið og þær liggja fyrir.