Gildi-lífeyrissjóður mun koma til móts við þá sem tekið hafa lán hjá sjóðnum og sjá fram á erfiðleika við að standa í skilum vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Sjóðurinn hefur alltaf sýnt lántakendum sínum sveigjanleika þegar vandi steðjar að og mun einnig gera það nú og svigrúm verður veitt eftir því sem lög og reglur heimila.
Sjóðfélagar sem sjá fram á að geta greitt af lánum sínum eru hvattir til að gera það enda verður greiðslum aðeins frestað en þær falla ekki niður. Meðan á greiðslufresti stendur leggjast vextir ofan á höfuðstól sem þýðir að afborganir hækka þegar greiðslufresti lýkur.Eru þeir lántakendur sem sjá fram á að þurfa að nýta sér úrræði um greiðslufrest beðnir um að hafa samband við lánadeild sjóðsins. Netfangið er
lan@gildi.is