27. January 2021

Gildi lækkar vexti og hækkar veðhlutfall

Nokkrar breytingar voru gerðar á lánareglum Gildis á fundi stjórnar sjóðsins fimmtudaginn 21. janúar síðastliðinn. Breytingarnar eru eftirfarandi:


Síðustu mánuði hafa uppgreiðslur lána hjá lífeyrissjóðum verið talsvert umfram nýjar lánveitingar. Með breytingunni á lánareglum og vaxtakjörum nú vill stjórn Gildis bregðast við þessari þróun og bjóða upp á enn hagstæðari lán en áður. Breytingin á veðhlutfalli lána hefur þegar tekið gildi en ný vaxtatafla, sem sjá má hér að neðan, mun taka gildi 5. febrúar næstkomandi.

  • Veðhlutfall lána hækkað í 75% en það var 70% áður. Eftir breytinguna fá sjóðfélagar grunnlán fyrir allt að 65% af virði eignar í stað 60% áður. Ofan á það geta sjóðfélagar fengið viðbótarlán upp í 75% af virði eignar.
  • Óverðtryggðir breytilegir vextir lækkaðir um 20 punkta. Þar með eru vaxtakjör óverðtryggðra lána hjá Gildi ein þau allra bestu sem í boði eru.
  • Verðtryggðir breytilegir vextir lækkaðir um 10 punkta.