Þeir sjóðfélagar sem hafa nýtt sér úrræði um
ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán þurfa nú að ákveða hvort þeir vilji halda því áfram eða ekki.
Að óbreyttu lýkur þessari ráðstöfun séreignarsparnaðar í júní en nú er unnt að framlengja hana um tvö ár. Það er gert með því að fara inn á
leidretting.is og óska eftir því fyrir lok júní 2017. Hægt er að endurskoða afstöðu sína hvenær sem er á tímabilinu.
Ríkisskattstjóri hvetur þá sem hafa nýtt sér úrræðið til að taka afstöðu og veitir frekari upplýsingar og aðstoð í síma 442-1900 eða í gegnum netfangið
adstod@leidretting.is.