Á framhaldsaðalfundi Arion banka, sem haldinn var fimmtudaginn 14. maí, lögðu fulltrúar Gildis-lífeyrissjóðs fram bókun þar sem gerðar voru athugasemdir við afgreiðslu á tillögu stjórnar bankans um heimild til útgáfu áskriftarréttinda að hlutabréfum í bankanum (e. Warrants). Sjóðurinn telur að heimild til útgáfu áskriftarréttinda feli í sér möguleika á því að koma á fót ígildis veglegs kaupaukakerfis fyrir starfsmenn Arion banka.
Gildi gerir athugasemdir við afgreiðslu málsins á aðalfundi félagsins 17. mars síðastliðinn en einnig við þá niðurstöðu að beiðni sjóðsins um að setja málefnið á dagskrá framhaldsaðalfundarins þann 14. maí, og að upplýsa aðra hluthafa um erindið, hafi verið hafnað.
Á framhaldsaðalfundinum lagði Gildi fram bókun þar sem sjónarmið sjóðsins voru rakin. Fyrr í maí hafði Gildi-lífeyrissjóður sent stjórn bankans erindi þar sem sjónarmið sjóðsins vegna afgreiðslu á tillögu um heimild til útgáfu áskriftarréttindanna voru reifuð og óskað eftir atkvæðagreiðslu.