Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl klukkan 17:00. Stefnt er að því að fundurinn fari fram á Grand Hótel Reykjavík en vegna Covid 19 er til skoðunar að hafa fundinn að hluta eða fullu rafrænan.
Endanlegt fyrirkomulag fundarins verður auglýst á heimasíðu sjóðsins og í fjölmiðlum um leið og það liggur fyrir.Dagskrá:
 	- Skýrsla stjórnar
 
 	- Kynning ársreiknings
 
 	- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt, fjárfestingarstefnu og hluthafastefnu
 
 	- Tillögur til breytinga á samþykktum
 
 	- Starfskjarastefna - til staðfestingar
 
 	- Kosning/skipan stjórnar
 
 	- Ákvörðun launa stjórnarmanna
 
 	- Kosning nefndar um laun stjórnarmanna
 
 	- Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis
 
 	- Önnur mál
 
Vakin er athygli á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti.