Vakin er athygli á að frestur til að sækja um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna COVID-19 er til 31. desember 2020.
Heimildin byggir á samþykki Alþingis frá því fyrr á árinu en hún var hluti af úrræðum sem gripið var til vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar.
Nánari upplýsingar:
- Hámarksúttekt fyrir einstakling er 12 milljónir króna.
- Hámarksgreiðsla á mánuði er 800.000 krónur.
- Tekjuskattur er innheimtur af greiðslum úr séreignarsjóði.
- Heimildin gildir frá 1. apríl 2020 til 1. janúar 2021
- Umsóknir sem berast fyrir 17. desember greiðast út um næstu mánaðamót.
- Ath. að heimildin nær ekki til tilgreindrar séreignar
Vakin er athygli á að sjóðfélagar geta nálgast upplýsingar um inneign sína í séreignardeild sjóðsins á
sjóðfélagavef.