19. April 2022

Eignir Gildis í árslok 2021 námu 916 milljörðum króna

Hrein nafnávöxtun Gildis-lífeyrissjóðs árið 2021 nam 17,8% sem þýðir að hrein raunávöxtun nam 12,4% samkvæmt ársuppgjöri sjóðsins sem nú liggur fyrir. Hrein eign Gildis í lok ársins nam rétt rúmlega 916 milljörðum króna og jókst um 152 milljarða króna milli ára. Munar þar mest um að hreinar fjárfestingartekjur á árinu námu 138,5 milljörðum kr. Góð ávöxtun sjóðsins á árinu 2021 var fyrst og fremst borin uppi af innlendum og erlendum hlutabréfum og erlendum framtakssjóðum. Innlend skuldabréf skiluðu einnig góðri ávöxtun á árinu sem og flestir aðrir eignaflokkar. Ítarlegar upplýsingar um rekstur Gildis, ávöxtun og afkomu má finna í ársskýrslu sjóðsins sem aðgengileg er hér.

Nafnávöxtun Raunávöxtun
Samtryggingardeild 17,8% 12,4%
Séreignardeild: Framtíðarsýn 1 16,8% 11,4%
Séreignardeild: Framtíðarsýn 2 11,8% 6,6%
Séreignardeild: Framtíðarsýn 3 4,9% 0,0%

„Afkoman er afar góð enda voru aðstæður á markaði mjög hagstæðar á árinu 2021“ segir Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis. „Lífeyrissjóðir eru langtímafjárfestar og í því sambandi má benda á að hrein raunávöxtun síðustu 5 árin er 8,5% og síðustu 10 árin 7,1%“.

Fimmföldun frá stofnun

Gildi er fjölmennasti lífeyrissjóður landsins en í lok árs 2021 áttu tæplega 252 þúsund sjóðfélagar réttindi hjá sjóðnum. Rúmlega 6.700 launagreiðendur greiddu iðgjöld til Gildis fyrir tæplega 53.000 sjóðfélaga á síðasta ári.

Góð ávöxtun sjóðsins ætti að vera fagnaðarefni fyrir alla sjóðfélaga en í því samhengi er áhugavert að skoða stöðu sjóðsins þegar hann varð til árið 2005 við sameiningu Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna og bera saman við stöðu hans í dag. Eignir hins nýja sjóðs námu árið 2005 rúmlega 181 milljarði króna sem þýðir að sjóðurinn hefur ríflega fimmfaldast á sextán árum. Ef horft er tíu ár aftur í tímann, þ.e. til ársins 2011 þá námu eignir sjóðsins ríflega 265 milljörðum sem þýðir að sjóðurinn er í dag ríflega þrisvar sinnum stærri í eignum en hann var þá. Það samsvarar því að hrein eign sjóðsins hafi hækkað um ríflega 65 milljarða á hverju einasta ári frá árinu 2011.

Ársfundur 28. apríl

Farið verður ítarlega yfir afkomu Gildis á ársfundi sjóðsins sem haldinn verður klukkan 17:00, fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt. Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirkomulag fundarins má finna á hér.