30. ágúst 2024
Vextir verðtryggðra sjóðfélagalána Gildis hækka
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka vexti breytilegra verðtryggðra sjóðfélagalána um 0,40% og vexti fasta verðtryggðra lána um 0,30%. Eftir hækkunina verða vextir breytilegra verðtryggðra grunnlána 4,0% og viðbótarlána 4,75%. Fastir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána verða 4,10% og viðbótarlána 4,85%.
Hækkun fastra vaxta hefur þegar tekið gildi en breytilegir vextir hækka 5. október næstkomandi.
Eftir að breytingin hefur að fullu tekið gildi 5. október mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:
| Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall) | Viðbótarlán (60-70% veðhlutfall) | |
|---|---|---|
| Verðtryggð – fastir vextir | 4,10% | 4,85% |
| Verðtryggð – breytilegir vextir | 4,00% | 4,75% |
| Óverðtryggð – breytilegir vextir | 10,35% | 11,10% |