21. febrúar 2025
Óverðtryggðir vextir Gildis lækka
Stjórn Gildis hefur ákveðið að lækka óverðtryggða vexti sjóðsins um 0,4%. Breytingin tekur gildi frá og með 24. mars næstkomandi. Verðtryggðir vextir sjóðsins taka ekki breytingum að þessu sinni.
| Grunnlán | Viðbótarlán | |
|---|---|---|
| (allt að 60% veðhlutfall) | (60-70% veðhlutfall) | |
| Verðtryggð – fastir vextir | 4,30% | 5,05% |
| Verðtryggð – breytilegir vextir | 4,30% | 5,05% |
| Óverðtryggð – breytilegir vextir | 9,50% | 10,25% |