Heimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar framlengd
18. maí 2021
Heimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar framlengd
Heimild til sérstakrar útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna COVID-19 hefur verið framlengd til ársloka 2021. Vakin er athygli á að sjóðfélagar geta nálgast upplýsingar um inneign sína í séreignardeild sjóðsins á sjóðfélagavef Gildis. Umsókn um útgreiðslu úr séreignardeild er einnig aðgengileg á sjóðfélagavefnum en hægt er að komast beint í hana með því að smella hér.
Nánari upplýsingar:
Hámarksúttekt fyrir einstakling er 12 milljónir króna.
Hámarksgreiðsla á mánuði er 800.000 krónur.
Tekjuskattur er innheimtur af greiðslum úr séreignarsjóði.
Miða skal við inneign 1. apríl 2021 og er umsóknarfrestur til 1. janúar 2022.
Umsóknir sem berast fyrir 19. dag mánaðar greiðast út um næstu mánaðamót.
Ath. að heimildin nær ekki til tilgreindrar séreignar.