11. febrúar 2025

Hefur þú áhuga á stjórnarsetu í fyrirtæki?

Vakin er athygli á að Gildi-lífeyrissjóður leitar að einstaklingum sem hafa áhuga á stjórnarsetu í hlutafélögum með stuðningi sjóðsins. Bæði er auglýst eftir áhugasömu fólki til að sitja í stjórnum félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands sem og í stjórnum óskráðra félaga þar sem sjóðurinn er meðal stærstu hluthafa.

Leitað er að fólki sem uppfyllir almenn hæfisskilyrði laga hvað stjórnarsetu varðar en aðrar áherslur eða skilyrði af hálfu sjóðsins geta verið mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni.

Áhugasamir geta skráð sig hér

Allar umsóknir sem sjóðnum berast eru trúnaðarmál. Gildi mun hafa samband ef sjóðurinn hefur hug á að tilnefna eða styðja viðkomandi umsækjanda til stjórnarsetu.

Nánari upplýsingar:

Val á stjórnarmönnum sem Gildi tilnefnir eða vill styðja til stjórnarsetu byggir á faglegu ferli þar sem kannaðir eru þættir eins og menntun, fagleg þekking, reynsla, færni og hæfi. Sérstaklega þarf að huga að samsetningu stjórna hlutafélaga með hliðsjón af fjölbreyttri þekkingu og kynjahlutfalli, og að ekki séu til staðar hagsmunaárekstrar milli einstakra stjórnarmanna og félagsins.