20. október 2025

Gildi veitir aðeins lán með föstum vöxtum

Gildi lífeyrissjóður metur þessa dagana áhrif dóms Hæstaréttar þar sem fjallað var um skilmála lána Íslandsbanka, en ljóst er að sú vinna mun taka nokkurn tíma. Á meðan mun sjóðurinn ekki veita sjóðfélagalán með breytilegum vöxtum – hvorki verðtryggð né óverðtryggð.

Sjóðfélögum mun áfram standa til boða verðtryggð lán með föstum vöxtum.

Nánari upplýsingar um stöðu mála verða birtar á vef sjóðsins um leið og þær liggja fyrir. Sjóðfélagar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.