29. október 2024

Gildi lækkar óverðtryggða vexti

Stjórn Gildis hefur ákveðið að lækka óverðtryggða breytilega vexti sjóðfélagalána um 0,15%. Eftir lækkunina verða óverðtryggðir breytilegir vextir grunnlána 10,20% og viðbótarlána 10,95%. Kjör verðtryggðra vaxta taka ekki breytingum að þessu sinni.

Lækkunin tekur gildi 5. desember og mun vaxtatafla sjóðsins þá líta svona út:

Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall)Viðbótarlán (60-70% veðhlutfall)
Verðtryggð – fastir vextir4,10%4,85%
Verðtryggð – breytilegir vextir4,00%4,75%
Óverðtryggð – breytilegir vextir10,20%10,95%
Til baka í fréttir