17. mars 2025

Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 2025

Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs 2025 verður haldinn fimmtudaginn 10. apríl klukkan 17:00 á Hótel Reykjavík Natura. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum.

Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.

Dagskrá ársfundar:

  • Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
  • Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
  • Önnur mál


Fundargögn og frekari upplýsingar má finna á ársfundarsíðu – sem er aðgengileg hér.