4. apríl 2024
Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 2024
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs 2024 verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl klukkan 17:00 á Hótel Reykjavík Grand í fundarsalnum Háteig. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Dagskrá ársfundar:
- Skýrsla stjórnar.
- Kynning ársreiknings.
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt, fjárfestingarstefnu og hluthafastefnu.
- Tillögur til breytinga á samþykktum.
- Starfskjarastefna - til staðfestingar.
- Kosning/skipan stjórnar.
- Ákvörðun launa stjórnarmanna.
- Kosning nefndar um laun stjórnarmanna.
- Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis.
- Kjör utanaðkomandi aðila í endurskoðunar- og áhættunefnd.
- Önnur mál.
Fundargögn:
- Tillögur til breytinga á samþykktum Gildis
- Ársskýrsla Gildis 2023
- Tillögur til breytinga á starfskjarastefnu
- Tillaga frá Erni Pálssyni
Vakin er athygli á að fulltrúar í fulltrúaráði Gildis sem vilja nýta atkvæðisrétt sinn á fundinum þurfa að mæta á staðinn.
Streymi:
Boðið verður upp af streymi af fundinum sem hægt verður að horfa á í spilaranum hér fyrir neðan.