Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs boðar til aukaársfundar sjóðsins fimmtudaginn 22. júní 2017 kl. 17 á Grand Hótel Reykjavík. Gera þarf breytingar á samþykktum sjóðsins til þess að unnt sé að framfylgja ákvæði kjarasamnings ASÍ og SA frá 21. janúar 2016 um að sjóðfélagar geti ráðstafað iðgjaldi umfram 12%, að hluta eða öllu leyti, í bundinn séreignarsparnað í stað samtryggingar. Tillaga þessa efnis verður borin upp á fundinum.
Dagskrá fundarins:1. Tillögur til breytinga á samþykktum Gildis-lífeyrissjóðs.Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa fer með atkvæði á fundinum.
Tillögur til breytinga á samþykktum má sjá
hér og liggja þær einnig frammi á skrifstofu sjóðsins.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs