Samtryggingardeild
Samtryggingardeild Gildis var með eignir upp á 1.213,6 milljarða króna í lok árs 2025. Eignir deildarinnar þróuðust með eftirfarandi hætti á árinu 2025 (ath. að allar tölur eru í milljörðum króna):
*Þar með talið 2,9 milljarða kr. örorkuframlag úr ríkissjóði
Hér fyrir neðan má finna helstu upplýsingar um ávöxtun, eignasamsetningu og fjárfestingastefnu Samtryggingardeildar Gildis. Ítarlegar upplýsingar má finna í ársreikningum og ársskýrslum sjóðsins sem hægt er að nálgast hér.
Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar Gildis á árinu 2025 nam 7,1% en var 11,8% árið 2024. Hrein raunávöxtun var 3,3% samanborið við 6,7% árið áður.
Hreinar fjárfestingartekjur sjóðsins á árinu 2025 voru 81.413 m.kr. samanborið við 119.873 m.kr. árið áður.
Ávöxtun samtryggingardeildar 2025
Nafnávöxtun eignaflokka samtryggingardeildar 2025
Nafnávöxtun samtryggingardeildar síðastliðin 10 ár
Meðal nafnávöxtun samtryggingardeildar síðustu fimm árin nemur 8,1% og alls 8,3% síðustu tíu árin.
Raunávöxtun samtryggingardeildar síðastliðin 10 ár
Meðal raunávöxtun samtryggingardeildar síðustu fimm árin nemur 1,8% og alls 3,8% síðustu tíu árin.