Hluthafastefna
Hluthafastefna Gildis hefur það að markmiði að setja fram áherslur sjóðsins varðandi virka þátttöku sem hluthafi í þeim félögum sem stefnan tekur til. Stefnan er sett á grundvelli stefnu sjóðsins um sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar og gildir til viðbótar þeim áherslum sem þar koma fram.
Hluthafastefna þessi gildir um fjárfestingar sjóðsins í skráðum félögum sem sjóðurinn á verulegan eignarhlut í.
Um verulegan eignarhlut telst vera að ræða þegar eitt eftirtalinna skilyrða er uppfyllt, enda nemi markaðsvirði fjárfestingarinnar umfram tveimur milljörðum króna.
- Eignarhlutur í félagi er 5% eða stærri;
- Sjóðurinn er meðal fimm stærstu hluthafa félags;
- Fjárfesting í félagi nemur a.m.k. 0,5% af heildareignum lífeyrissjóðsins.
Litið er til grundvallarsjónarmiða stefnunnar hvað varðar aðrar fjárfestingar sjóðsins eftir því sem viðeigandi er hverju sinni.

Framkvæmd hluthafastefnu
Liður í hluthafastefnu er að birta yfirlit um hvernig atkvæði Gildis er varið á aðalfundum skráðra hlutafélaga og hvaða tillögur bornar eru upp í nafni sjóðsins.
Gildi er fyrsti lífeyrissjóðurinn hér á landi sem birtir slíkar upplýsingar með þessum hætti.
Stjórnarsetuskráning
Undanfarin ár hefur Gildi óskað eftir að einstaklingar sem vilja gefa kost sér til stjórnarsetu í hlutafélögum með stuðningi sjóðsins, skrái sig. Leitað er að fólki sem uppfyllir almenn hæfisskilyrði laga og önnur þau skilyrði sem sjóðurinn setur hverju sinni.
Val á stjórnarmönnum sem Gildi tilnefnir eða vill styðja byggir ávallt á faglegu ferli.