2. March 2022

Breytingar á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn Gildis hefur ákveðið að lækka verðtryggða vexti sjóðsins en hækka óverðtryggða vexti.

Breytilegir verðtryggðir vextir lækka um 10 punkta og verða vextir gunnlána þá 1,60% og viðbótarlána 2,35%. Fastir verðtryggðir vextir lækka um 20 punkta og verða vextir grunnlána þá 2,80% og viðbótarlána 3,55%. Breytingarnar taka gildi 5. mars næstkomandi.

Breytilegir óverðtryggðir vexti munu hins vegar hækka um 45 punkta þann 5. apríl næstkomandi. Vextir óverðtryggðra grunnlána Gildis verða eftir breytinguna 4,50% og viðbótarlána 5,25%.

Eftir að allar breytingar hafa tekið gildi mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:

Grunnlán Viðbótarlán
Óverðtryggð (breytilegir vextir) 4,50% 5,25%
Verðtryggð (fastir vextir) 2,80% 3,55%
Verðtryggð (breytilegir vextir) 1,60% 2,35%