Eign – Verðtryggð

Einstaklingur teygir sig eftir vöru í hillu í matvöruverslun

Í Eign - Verðtryggð eru allar eignir ávaxtaðar í verðtryggðum innlánum.

Leiðin hentar einkum þeim sem vilja trygga ávöxtun yfir styttri tíma.

Sækja um séreign hjá Gildi

Vakin er athygli á ávöxtunarleiðin hét áður Framtíðarsýn 3 en nafninu var breytt í Eign - Verðtryggð um mitt ár 2026.

Ávöxtun

Þegar séreign er ávöxtuð í jafnvel áratugi, þarf að horfa sérstaklega vel á ávöxtun yfir lengra tímabil. Þar þarf einnig að hafa í huga mun á raunávöxtun og nafnávöxtun.

Nafnávöxtun sýnir hversu mikið eign hefur vaxið í krónum án tillits til verðbólgu eða kostnaðar. Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu og kostnaði. Hún sýnir þá hækkun á raunvirði.

Síðustu 12 mánuði

7,3%

3 ára meðaltal

6,7%

5 ára meðaltal

7,5%

Hrein raun- og nafnávöxtun

Hér má sjá hreina nafn- og raunávöxtun Eignar - Verðtryggðrar árið 2025 en einnig 5 og 10 ára meðaltal.

Hrein nafn- og raunávöxtun Eignar – Verðtryggðrar.

Munur á raun- og nafnávöxtun (dæmi):

Þú átt 100.000 krónur og leggur inn á bankabók með 10% vöxtum. Eftir ár áttu 110.000 krónur. Nafnávöxtun er því 10.000 krónur.

Á þessu ári var verðbólga 5% sem dregst frá nafnávöxtuninni. Formúlan til að reikna hana út er nafnávöxtun deilt með verðbólgu - sem gefur í þessu tilfelli 4,76. Það þýðir að 100.000 krónurnar hafa vaxtið í verðmæti um 4,76% eða um 4.760 krónur.

Gengi

Einföld leið til að átta sig á ávöxtun eignasafns í Eign - Verðtryggð er að skoða gengisþróun síðustu ára. Gengi fjárfestingarleiðarinnar (áður Framtíðarsýn 3) hefur þróast með eftirfarandi hætti frá árinu 1999.

Fjárfestingastefna

Í Eign - Verðtryggð er allur sparnaður ávaxtaður í verðtryggðum innlánum. Fjárfestingarstefna leiðarinnar tekur mið af því og er þar að leiðandi afar einföld.

VerðbréfaflokkurEignir 31.12.2025Stefna 2026Heimilað frávik - lágmarkHeimilað frávik - hámark
Verðtryggð innlán100%100%100%100%
Samtals100%100%

Lykilupplýsingar

Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign - Verðtryggð hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.

Lykilupplýsingablað: Eign – Verðtryggð